Nánar um flokk
Fyrirtæki
Hagstofa Íslands vinnur upplýsingar úr fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra en í hana eru skráð öll fyrirtæki og stofnanir svo og félagasamtök sem fengið hafa kennitölu. Alls voru um 46.000 kennitölur skráðar í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra í árslok 2003. Úr skránni eru m.a. unnar upplýsingar um fjölda fyrirtækja og nýskráningar félaga. Þá vinnur Hagstofan upplýsingar úr staðgreiðsluskrá til að fá upplýsingar um launagreiðendur og sjálfstætt starfandi einstaklinga.
Velta
Hér er birt heildarvelta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum. Byggt er á skýrsluskilum fyrirtækja til skattyfirvalda á tveggja mánaða fresti. Veltan er sýnd án virðisaukaskatts og er hún flokkuð á atvinnugreinar samkvæmt atvinnugreinaflokkun Hagstofunnar, þ.e. ÍSAT 95. Þótt fyrirtæki starfi í fleiri en einni atvinnugrein skilar það að jafnaði aðeins einni skýrslu til skattyfirvalda. Veltutölur í einstökum atvinnugreinum sýna því í reynd veltu þeirra fyrirtækja sem flokkast með aðalstarfsemi í viðkomandi grein. Aukastarfsemin telst því með aðalstarfsemi í þessum skýrslum og leiðir það iðulega til þess að velta í ýmsum atvinnugreinum er býsna blönduð.Afkoma fyrirtækja
Hagstofan tekur saman yfirlit um rekstur og efnahag atvinnurekstrar. Meginhluti þessa efnis er unninn upp úr stöðluðum skattframtölum rekstraraðila, sem skattyfirvöld tóku í notkun frá og með efni ársins1997. Framtölin ná til fyrirtækja í öllum atvinnurekstri að fyrirtækjarekstri hins opinbera meðtöldum en önnur starfsemi hins opinbera er undanskilin. Hagstofan hefur aukið við þetta efni ársreikningum ýmissa fyrirtækja sem stöðluð skattframtöl ná ekki til. Má þar nefna banka, trygginga- og fjármálafyrirtæki og orkufyrirtæki. Safnið nær nú til afar stórs hluta eða yfir 90% alls fyrirtækjarekstrar í landinu.Þjónusta sem veitt er:
- almennum fyrirspurnum er svarað í síma 528 1100 og með tölvupósti
- á bókasafni Hagstofunnar eru veittar upplýsingar, hægt er að fá þar ljósrit úr skýrslum eða gögn í tölvutæku formi
Nánari upplýsingar veitir:
- Hrönn Kristinsdóttir í síma 528 1127 (velta og afkoma)
- Stefán Sigurðsson í síma 528 1265 (fyritæki og launagreiðendur)