miðvikudagur 18. febrúar 2004
Nr. 24/2004

Mannfjöldi 31. desember 2003

Út er komið annað hefti í efnisflokknum Mannfjöldi í Hagtíðindum ársins 2004. Þar er fjallað um skiptingu mannfjöldans hinn 31. desember 2003. Í töfluefni í viðauka er að finna töflur um mannfjölda og þróun hans í einstökum sveitarfélögum og byggðakjörnum.
   Samkvæmt þjóðskrá hinn 31. desember 2003 voru íbúar á Íslandi 290.570. Ári áður voru landsmenn 288.471 og er fjölgunin milli ára því 0.7%. Þetta er svipuð fólksfjölgun og ári fyrr en talsvert minni fjölgun en næstu ár þar á undan. Á höfuðborgarsvæðinu hefur dregið nokkuð úr fólksfjölgun hin síðari ár; íbúum þar fjölgaði nú um 1,1%. Á landsbyggðinni var fólksfjölgun aftur á móti meiri en verið hefur undanfarið (0,2%)

Mannfjöldi 31. desember 2003 - útgáfur  

Talnaefni - sveitarfélög
Talnaefni - byggðarkjarnar, póstnúmer og hverfi



Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100, netfang upplysingar[hja]hagstofa.is

Deila