Frétt

föstudagur 27. júlí 2012
Nr. 136/2012

Nýskráningar og gjaldþrot fyrirtækja í júní 2012

Í júnímánuði voru skráð 185 ný einkahlutafélög, flest í fasteignaviðskiptum. Til samanburðar voru 145 ný einkahlutafélög skráð í júní í fyrra. Fyrstu 6 mánuði ársins var fjöldi nýskráninga 922, en það er rúm 5% aukning frá sama tíma í fyrra þegar 876 fyrirtæki voru nýskráð.

Þá voru 51 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í júnímánuði, flest gjaldþrot voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð sem og heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum. Fyrstu 6 mánuði ársins var fjöldi gjaldþrota 572, en það er um 32% fækkun frá sama tíma í fyrra þegar 841 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.



Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kári Bergmann í síma 528 1266.

 

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi