Frétt

föstudagur 27. júlí 2012
Nr. 137/2012

Framleiðsluverð lækkar um 1,2% milli mánaða

Vísitala framleiðsluverðs í júní 2012 var 216,5 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 1,2% frá maí 2012. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 271,3 stig, sem er lækkun um 0,7% (vísitöluáhrif -0,2%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 232,6 stig, lækkaði um 2,0% (-0,7%). Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,3% (-0.1%) og vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 1,0% (-0,2%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,1% milli mánaða og vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um
1,5% (-1,2%).

Miðað við júní 2011 hefur vísitala framleiðsluverðs lækkað um 0,7% en verðvísitala sjávarafurða hækkað um 6,9%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 12,7% en matvælaverð hefur hækkað um 3,7%.

Grunnur vísitölu framleiðsluverðs er endurmetinn árlega og frá og með júní 2012 byggir matið á upplýsingum Hagstofu Íslands um söluverðmæti framleiddra vara árin 2010 og 2011.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2011
Júní 0,5 1,8 -1,6 1,1 -0,1 0,7
Júlí 0,2 0,2 -0,5 1,5 1,5 -0,2
Ágúst -0,8 0,5 -2,9 1,5 1,2 -1,3
September -0,6 0,2 -2,6 1,2 1,2 -1,2
Október -1,1 1,8 -4,5 -0,7 0,0 -1,3
Nóvember -0,9 0,5 -4,0 0,2 0,9 -1,5
Desember 0,1 1,9 -1,6 -0,4 -0,2 0,2
2012
Janúar 1,1 1,6 0,4 0,2 1,0 1,1
Febrúar 1,9 -0,8 5,2 0,0 0,3 2,4
Mars 2,7 2,2 4,5 -0,2 0,7 3,3
Apríl 0,5 1,2 0,0 0,6 0,5 0,5
Maí -2,5 -1,7 -5,0 0,2 0,1 -3,3
Júní -1,2 -0,7 -2,0 -0,3 -0,1 -1,5

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2011
Júní 13,0 14,6 14,1 5,8 5,7 15,0
Júlí 17,1 15,0 23,6 6,9 7,6 19,8
Ágúst 17,2 19,4 20,7 8,7 7,5 20,0
September 13,9 15,3 13,2 10,1 9,4 15,1
Október 12,8 16,3 10,4 8,0 7,8 14,1
Nóvember 8,4 16,2 -2,5 7,7 9,6 8,0
Desember 6,7 18,4 -6,4 7,3 8,0 6,3
2012
Janúar 5,7 16,3 -8,1 7,5 9,4 4,6
Febrúar 4,9 12,7 -6,5 6,4 8,4 3,9
Mars 6,4 12,9 -3,9 5,0 8,2 5,9
Apríl 5,3 12,4 -3,4 5,4 7,7 4,5
Maí 1,0 9,6 -12,3 5,3 7,4 -0,8
Júní -0,7 6,9 -12,7 3,7 7,4 -2,9

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í júní 2012 var 1,3% lægra en í maí 2012 en 0,6% hærra en í júní 2011. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni



Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200, netfang framleidsluverd[hja]hagstofa.is

 

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi