Frétt

föstudagur 6. júlí 2012
Nr. 129/2012

Alþjóðleg ráðstefna um tölfræði í ferðaþjónustu haldin í Hörpu í nóvember

Dagana 14. til 16. nóvember n.k. verður haldin í Hörpu alþjóðleg ráðstefna um tölfræði í ferðaþjónustu (11th Global Forum on Tourism Statistics). Ráðstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir umræðu um tölfræði og ýmsa þætti ferðaþjónustu og er þetta í ellefta sinn sem hún er haldin. Alls hafa borist ágrip af 50 erindum frá fræðimönnum í 20 löndum og má reikna með að á bilinu 20 til 25 erindi verði flutt. Dagskrá mun liggja fyrir í lok júlí á vef ráðstefnunnar.

Ráðstefnan er haldin annað hvert ár af Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat, og ferðamálanefnd Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Að þessu sinni er hún haldin í samvinnu við iðnaðarráðuneytið, sem jafnframt er ráðuneyti ferðamála, Hagstofu Íslands, Ferðamálastofu og Rannsóknarmiðstöð ferðamála.

Nánari upplýsingar og skráning er á vef ráðstefnunnar, www.11thtourismstatisticsforum.is.



Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.

Nánari upplýsingar veitir Hildur Kristjánsdóttir í síma 528 1267, netfang gistiskyrslur[hja]hagstofa.is

 

Leita Leit

Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi