Frétt

mánudagur - 8. febrúar 2010
Nr. 24/2010

Vísitala byggingarkostnaðar á nýjum grunni

Hagtíðindaheftið Vísitala byggingarkostnaðar á nýjum grunni er komið út. Í heftinu er gerð ítarleg grein fyrir gerð magngrunnsins, nýju vísitöluhúsi lýst og aðferðafræði vísitölunnar útlistuð.
 
Vísitala byggingarkostnaðar var birt á nýjum grunni þann 21. janúar síðastliðinn. Nýtt vísitöluhús liggur til grundvallar og fór vinna við magntöku þess fram í nánu samstarfi við reynda verktaka á byggingarmarkaði. Nýja vísitöluhúsið er 18 íbúða svalagangshús á höfuðborgarsvæðinu. Með nýjum grunni verða einnig smávægilegar breytingar á samsetningu byggingarvísitölunnar í samræmi við leiðbeiningar hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat. Mæling á vinnuliðum breytist og byggist nú á launarannsókn Hagstofu Íslands í stað þess að fylgja töxtum úr opinberum kjarasamningum. Öll gagnasöfnun vísitölunnar er rafræn og fer fram um miðjan hvern mánuð eins og áður.

Vísitala byggingarkostnaðar á nýjum grunni - Hagtíðindi



Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200, netfang byggingarvisitala[hja]hagstofa.is

Athugasemd

   
Nafn Netfang *
   
Hagstofan áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem ekki eru talin viðeigandi!

Leitarvél
Byggir á LiSA CMS. Eskill -LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi